Herbergi 214
www.atvr.is
17.08.2006 18:28:40 / finnur

helvítis blogg

ég var búin að blogga  helling svo fór ég í staðfesta og viti menn það hverfur allt . EN allavega í stuttu máli við í jegermeister kepptum við fc flóa í gær og ég er svo marin á löppinni að ég get varla stígið í hana  og svo er ég eikkað lélegur í hendinni líka en allavega menningarnótt um helgina og eikkað veit ekki hvort maður á að fara en ef einhver veit hverjir eru að spila þar þá endilega kommenta um það og svo ef einhver veit um eikkað partý endilega láta mig vita ég væri alveg til í smá djamm um helgina en gott í bili sjáumst síðar 

» 3 hafa sagt sína skoðun

11.07.2006 20:41:14 / finnur

góðan dagin

Já fólk nú er ég með stór fréttir í gær unnum við í jegermeister fyrsta leikin okkar í sumar og var það á móti hnohna . pælið í aðeins asnalegra nafni á fótbolti liða jesus christ . En allavega unnum við 3-1 Hannes ólafur skoraði 2 mörk og Plóli skoraði eitt. En af því ég mér langar rosalega að heyra í fólki hvað á að gera um verslunamanna helgina enda bara þrjár vikur í það eða eikkað en kommentið um þetta see ya folks

» 4 hafa sagt sína skoðun

29.06.2006 14:30:31 / finnur

Spain

jaeja gott fólk nú sit ég í tolvu á hótelinu mínu á spáni og tad er ógedslega heitt úti thad er víst einhver siesta í gangi núna tannig ad allar búdir er lokadar en tá fer madur bara uppá hótel og faer sér bjór og slappar af. Tad er samt ´rosalega skrítid ad ég er búin ad drekka fult af bjór enda ekki skrítid bjórin kostar eina evru eda eikkad en planid er ad´ég og pálmi atlum ad kýkja á einhvern bar eda eikkad í kvold og skoda senjórítur og sonna. En í gaer villtumst vid inná einhverja gotu tar voru mjog fáklaeddaer konur. Ég sagdi mommu og pabba ad thetta vaeru horur. En thau trúdu mér ekki. Ekki fyrr en thaer foru ad stoppa bila og fara med theim eikkurt burt thá vildu mamma og pabba fara í eikkad annad hverfi thannig ad vid forum einhvern veitingastad í odru hverfi en madur fer kannski aftur í thetta hverfi seinna. en allavega er farin í skugga uppí herbergi en tetta er gott í bili buanas dias


» 0 hafa sagt sína skoðun

16.06.2006 22:45:17 / finnur

Gunnarshólma ball

Jæja krakkar þá er maður bara að fara á ball sem er snilld ég er mjög ánægður að fólk sé farið að kommenta aftur og sonna og mun ég blogga um ballið þegar það er afstaðið en þangað til sjáumst annað hvort á skímó balli í kvöld eða á MOONSHINE á útlaganum annað kvöld see ya later

» 6 hafa sagt sína skoðun

11.06.2006 16:33:29 / finnur

Ball í Gunnarshólma 16 júní (skímó)

Já gott fólk nú er komið að því eitt af flottustu böllum sumarsins verður á föstudagin 16. maí sem sagt næsta föstudag. Mér er sagt að hljómsveitin skítamórall verði að spila en svo hóf ég einnig heyrt raddir um það að sálin verði að spila en ég spila það ekki dýrara en ég keypti það. En allavega þá er Gunnarshólmi rétt fyrir utan hvolsvöll og er auðvelt að finna staðin. En ef að einhver hefur einhverjar spurningar um þetta ball já eða bara eikkað endilega kommenta og ég mun svara eins fljótt og ég get endilega líka kommenta um hvort þið atlið að fara eða bara eikkað en þið sem atlið á ball sjáumst á föstudagin


» 16 hafa sagt sína skoðun

27.05.2006 16:15:56 / finnur

Útlagin í gær og í kvöld

Í gær var farið á flúði ég Bjarni, Eiríkur og Hannes . Þar var farið í Partý hjá Sigrúnu, Sunnnu og Hrefnu. Þar vorum við í einhvern tíma og voru menn mikið að stunda það að taka vískí í nefið. Ég hugsaði nú bara þetta eru nú meiru amaturarnir kunna ekki einu sinni að meta gott vískí uss uss. En svo ákváðum ég Eiríkur, Hannes og Ævar að fara á útlagan Þegar við komum þangað var Ævar rekin út nánast áður en hann fór inn. En þarna var hljómsveitin MOONSHINE í fullu fjöri . Þegar klukkan var að slá þrjú fór ég aftur í partýið en svo þegar klukkan var að nálgast fjögur fóru margir að verða þreyttir og fóru sumir að deyja ég nefni engin nöfn en það var mjög erfitt að koma sumum út í bíl sérstaklega þar sem þeir gátu varla opnað augun til að sjá hvaða skó þeir ættu þannig að það gæti verið að sumir séu með skó sem þeir kannast ekki við. En svo var ég komin heim svona um fimm leytið og fór ég þá út í fjárhús að gá til kinda en það var engin að bera. PS fyrir þá sem vita ekki hvað þýðir þegar kind er að bera þá er það þegar hún er að fæða lömbin sín ok.

Ég hvet alla til að mæta í kvöld (laugardagskvöld) á útlagan í kvöld þar sem MOONSHINE verður með svaka stuð svona eftir kosningar en allir að mæta. MOONSINE menn lofa miklu stuði .


» 0 hafa sagt sína skoðun

24.05.2006 20:25:24 / finnur

untitled

Nú fannst mér komin tími til að blogga enda liðin langur tími síðan ég bloggaði seinast. En ég er búin að vera of upptekin í fjárhúsinu undanfarið til þess að blogga. En síðast liðin föstudag var farið í teiti  hjá húsasmiðjunni . Það var lagt á stað um átta leitið ég pabbi og jökull að keyra. Þá var byrjað að drekka bjór á leiðinni til að koma sér í fíling og sonna og svo þegar við komum í húsasmiðju teitið hittum við fullt af fólki og þarna var boðið uppá bjór og sonna . Þannig að auðvitað fékk maður sér ég meina hver getur neitað fríum bjór. En eftir húsasmiðju teitið fórum ég smári, jökull og Pálmi uppí Reykholt að hitta Eika (Arndal) og einhverja félaga hanns sem voru þarna í útilegu. Svo kýktum við á klettin í smá stund og hittum fulla sveitunga. Svo dagin eftir var vaknað snemma og farið á selfoss að prófa Ford Explorer á betri bílasölunni. En eftir að við vorum búnir að rúnta um selfoss á explorer var farið á stokkseyri á fótbolta mót. Þetta er nú meira skítaplaceið (stokkseyri) Það var svo mikið rok þarna að í hvert skipti sem að boltanum var sparkað út kom hann hálfa leið til baka. Svo þegar einhver skaut boltanum útaf þá stoppaði hann ekki fyrr en hann lenti á bíl eða oní sundlauginni. Svo´í seinasta leiknum byrjaði allt í einu að snjóa puff . Þá vorum við nú ekki lengi að hangsa þarna heldur komum okkur aftur uppí sveit þar sem var ekki snjór og skítakuldi. En svo var víst einhver smá útilega heima hjá mér í tilefni af eurovision en það var svo kallt um nóttina að við fórum allir inn. En ég gleyni nú að minnast á drikkjuleikin okkar þannig var að allir áttu að velja sér land. Svo þegar kom að úrslitunum átti að' drekka einn sopa fyrir hvert stig sem landið þitt fékk. Enallavega smári valdi danmörk jökull valdi moldavíu og biggi valdi ukraínu. Og eins og ég er nú rosalegur þá valdi ég finnland þið sem horfðuð á eurovision vitið hvernig ég hef endað en þar sem þessi síða er aðgengileg fyrir all þá verðið þið bara að spurja mig þegar þið hittið mig en núna held ég að ég sé búin að telja upp allt það skemmtilega sem að ég er búin að gera undanfarið og svo er mér líka orðið illt í puttunum að skrifa svona mikið en ég kem með annað blog seinna en þangað til þá bless


» 1 hafa sagt sína skoðun

09.05.2006 12:15:50 / finnur

Lokaball FSU

Já gott fólk fólk nú er komið að því á föstudagin er lokaball fsu og verður það í Njálsbúð og verða veðurguðirnir að spila og hvet ég alla til að mæta. En svo vantar mig far á ballið þannig að ef einhver er með laust laust pláss þá má alveg láta mig vita .sjáumst síðar.

» 7 hafa sagt sína skoðun

06.05.2006 21:41:31 / finnur

Útlagin í kvöld

´Já gott fólk í kvöld er hljómsveitin MOONSHINE á útlaganum á flúðum og hvet ég alla sem að geta mætt að kýkja því það verður svaka stuð.

» 1 hafa sagt sína skoðun

04.05.2006 19:38:56 / finnur

Ball á morgun todmobile og veðurguðirnir

Já gott fólk á morgun er ball í hvíta húsinu og verða þar að spila Todmobile og veðurguðirnir . Er þetta ball á hótelinu á selfossi sem er snilld ómjá.. En ég vil heyri hverjir ætla að fara það gæti verið að maður verði driver en veit það samt ekki . En ég vil líka minna á gulldrengina í MOONSHINE sem eru að spila á útlaganum á laugardagskveldið en ég hvet all til að mæta á útlagan því ég ætla svo sannarlega að mæta


» 0 hafa sagt sína skoðun

29.04.2006 20:13:59 / finnur

Ball í Gunnarshólma skýrsla

Já gott fólk var farið á ball í Gunnarshólma og fyrir þá sem ekki vita er það rétt hjá hvolsvelli. En allavega aðal fréttin með það er að ég var edrú og var að keyra . Já ég veit að sumir eiga bágt með að trúa þessu en þetta er satt. Ég hitti einn félaga minn á ballinu og hann var að reyna að gefa mér bjór en ég afþakkaði og sagðist vera að keyra. Þá leit hanns geðveikt alvarlega á mig og sagði : ok fórstu í meðferð eða . Ég var mjög hneykslaður ég er nú ekki svona mikil fyllibytta . Hann var ekki einu sinni að djóka hann var grafalvarlegur þegar hann sagði þetta. En ég verð að segja að þetta er eitt af skemmtilegri böllum sem að ég hef farið á allavega miðað við það að ég var edrú. Ég er að reyna að drekka minna nú heldur en áður það er allt í lagi að keyra stundum. En ballið heppnaðist vel, hitti fullt af fullu fólki sem að ég þekkti og skemmti mér bara vel. En svo þegar átti að fara heim var allt að stefna í slagsmál milli ónefndra vina minna og hellubúa. Ég sem að ætlaði bara að fara beint heim með Ævar Bigga og Kobba en þeir voru bara eikkað nei maður mig langar að sjá slagsmál. Eftir að hafa nöldrað í þeim í hálftíma þá komu þeir loksins. Svo var heimleiðin mjög löng því það drápust allir á leiðinni og ég var bara einn eikkað vúhú. Svo var ég komin heim klukkan rúmlega fimm og sofnaði svona um hálf sex leitið. En allavega þá vaknaði ég eldsprækur klukkan átta í morgun og fór að rýja rollur jibbý. Og svo þurfti að gefa og svona . Ég var búin að vinna klukkan sjö og fór þá borða og svo að blogga. þannig að ég svaf í tvo og hálfan tíma. En samt er ég ekkert þreyttu. En ég er samt að pæla að alltaf þegar á að fara heim af böllum þá tekur alltaf eylífðartíma að ná fólki út í bíl. Þannig að ég bara spyr er ég líka svona þegar ég er drukkin ég trúi því nú valla. En nú er komið gott í dag sjáumst síðar ..

» 6 hafa sagt sína skoðun

26.04.2006 18:59:11 / finnur

Apríl mánuður

Já gott fólk ég er sko búin að bralla margt í þessum mánuði ég man nú ekki mikið helgarnar en ég afrekaði það að kaupa mér krossara eða (enduro hjól ) whatever en allavega þá er þetta hjól husqvarna te 410cc árg 2000. Og gaman er líka að segja frá því að pálmi á eins hjól nema hvað hanns er 98 árg og aðeins kraftminna. Já svo tókst mér líka að selja skellinöðruna mína fyrir 20.000 og er ég búin að lifa á þeim peningum í mánuðinum annars væri ég dauður úr peninga leysi. því hjólið kostaði 250.000 svo lánuðum mamma og pabbi mér fyrir útbúnaðinum sem kostaði 66.000. En í seinustu helgi hófst helgin á laugardegi. Ég fór í reisugil hjá ömmu og rúnari frænda. Það byrjaði klukkan fimm og var dælt í mann bjór frá því að ég steig inní bústaðin og þangað til að ég fór útúr honum. Þar var boðið uppá bjór fisherman skot og svo nýjan drykk sem að heitir bacardi razz. Það voru komnar hugmyndir að drykk á bar t.d ef þú pantar drykk á bar sem samanstendur af bacardi rass og gatorade þá á sá drykkur að heita rassgat. he he . En það var farið úr reysugilinu á útlagan að hlusta á moonshine (smári óttar og villi) . Ég var orðin frekar drukkin þegar ég fór úr reysugilinu og ekki skánaði það þegar ég var komin á útlagan þá varð ég slæmur. úff. tókst að detta og slasa mig á löppinni og er búin að vera soldið halltur í vikunni en það er að lagast. en ég held að ég sé búin að segja alla helstu atburði mánaðarins en mig langar rosalega að heyra skoðanir frá fólki um að fara á bíladaga á Akureyri sem sagt 16-18 júní . en svo var ég að spá í að setja nýja skoðanarkönnun inn líka that´s all folks but don´t worry  .. i´ll be back


» 6 hafa sagt sína skoðun

17.03.2006 22:15:01 / finnur

Netið komið í lag

Já gott fólk nú er netið komið í lag loksins búið að vera bilað í þrjár vikur. Maður tekur eftir því þegar maður hefur ekki netið hversu nauðsynlegt það er en allavega. Ég fór á tvö böll í seinustu helgi á föstudeginum var ungfrú suðurlands ballið og fékk ég tvo frímiða á það en það var eikkað voðalega erfitt að finna einhvern til að koma með sér á ball. ég meina kom on fólk ég var að reyna að bjóða fólki miða ókeypis en það voru allir eikkað uppteknir eða búnir að borga sig inn. en allavega fór ég svo á árshátið ml á laugardags kvöldið . og fólk sem þekkir mig veit hvað ég hata ml böll en ég verð bara að segja að þetta var besta ml ball sem að ég hef farið á sem er flott. Svo í gærkvöldi var skellt sér á pakkhúsið til að rifja upp gamla tíma. ég var meira að segja með bílstjóra en samt drakk ég bara einn bjór hvað á það að þýða en allavega verður maður svona nokkuð slakur um helgina er að fara að vakna klukkan átta á morgun til þess að fara að reysa sumarbústað fyrir ömmu en allvega nú ætla ég að reyna að vera duglegur að blogga fyrst að netið er komið í lag. Kannski kýkjir maður eikkað út á lífið annað kvöld en sjáumst þangað til næst.

» 6 hafa sagt sína skoðun

04.03.2006 18:46:54 / smári

Ný síða !!!

Jæja, nú höfum við í hljómsveitinni MoonShinE opnað heimasíðu www.blog.central.is/moonshine  tjékk itt át !!

» 2 hafa sagt sína skoðun

23.02.2006 23:20:30 / smári

Ball á morgun !!!

Nú eru kátudagarnir í skólanum.... og þá eru allir fullir... sérstaklega Hannes og Gylfi  :lol: og svo er Fóafárið í fyrramálið og þá ætlum við (Glamour) að RÚSTA!!! þessu helvítis fári... Við verðum allir geðveikt töff eikkvað allir strákarnir eins og lífverðir og allar stelpurnar eins og Sylvía Nótt..  Og svo verðum ég, Óttar og Villi ásamt Hannesi og Gylfa ( sem verða mjög fáklæddir gggrrrrrr.) ásamt fullt af flottum kjellingum  með skemmtiatriðið sem er algjör snilld. Sylvía Nótt skilurru!!!

Og svo er að sjálft kvöldið.

Þá verður dúndurstuð á balli í hvítahúsinu þar sem við í hljómsveitinni MoonShinE hitum upp og spilum í hléi hjá Skímó.  Það verður Rokk og dúndur og geðveikt stuð.... óóó mjáwww

Skildumæting annað kvöld.....

Ég er farinn á Pakkarann óóó mjáááwww


» 14 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3